|
|
21.07.2006 14:19:50 / klessurnar-
Hola..!!
Við ætlum bara að láta vita að við
erum allveg HÆTTAR með þessa síðu..!! Og erum komnar með aðra..!
ekki fullkláruð reyndar en þetta kemur allt saman... við ætlum
bara að kveðja... ;*;**
-Karen,Eva,Dagný & Ása

www.blog.central.is/hiccup
»
16.07.2006 23:07:56 / asa

Hallów..<3;*
Gaman að heyra loksins í ykkur, vá síðustu dagar hafa verið
skemmtilegir.. Hef sko frá mörgu að segja! Uuu sko man ekkert
allt þannig að ég segji bara frá þessu helsta,
Rakel frænka mín sem ég hef ekki séð í 6 ár
kom frá Danmörku á mánudaginn og fer svo aftur á morgun, það var
alltof gaman að hitta hana aftur Þannig að á þriðjudeginum
eftir að hún kom, komu hún og fleiri ættingjar í kaffi til okkar
sem var fínt Svo á miðvikudeginum var farið í göngutúr með
ættinni.. Á fimmtudaginn var sumarhátíð vinnuskólanna sem var
rosalega fínt, fórum e-ð í ráðhúsið og gerðum e-ð fleira en í endan
fóru allir í Nauthólsvík og hlustuðu á
Jakóbínurínu spila og fengu pítsu og e-ð fleira skemmtilegt! Svo
kom ég heim og þá hafði minn 'yndislegi' hundur ælt ekkert smá á
gólfið og ég þurfti að þrífa það upp því ég var ein heima, held ég
hafi aldrei kúgast jafn mikið á ævi minni! Svo fór ég í sund með
Oddnýju, Rakeli og Jóhönnu og svo fórum við í bíó á Stick It sem er
geðveik! Mæli tvímælalaust með henni!
Á föstudaginn fór ég í vinnuna og minn yndislegi flokkstjóri
hleypti okkur heim að hádegi útaf veðri og líka útaf því að þetta
var síðasti garðurinn hjá okkur í sumar Þannig að ég fór heim
í sturtu og dreif mig svo uppí Kringlu að hitta mína
yndislegu og bestu vinkonu sem heitir
Ína<3;* Ég elti hana um allt á meðan hún keypti sér hálfa
Kringluna fyrir fleiri þúsundir! Svo kom
mamma og keypti handa mér svona stutta peysu og belti og svo fórum
við heim og ég gerði mig til því ég var að fara á
Footloose<3 Þannig að mér var skutlað
uppí Kringlu aftur og fékk mér að borða og svo fórum við Oddný,
Rakel, Jóhanna og Reynir á Footloose sem var sjúkt! Vá það
var æðislegt! Svo fór ég bara heim að sofa..
Á laugardaginn svaf ég út og var bara
e-ð heima þangað til við mamma fórum til afa að elda, svo kom fullt
af fólki í mat. Oddný kom og ég fékk að gista með henni og
Rakel heima hjá afa! Það var stuð! Gerðum margt
skemmtilegt það kvöldið, haha! Í dag var
farið í Bláa Lónið, sem var mjög fínt, Svo fór ættin í mat heim til
okkar! En já, ég vil endilega fá að vita hverjir ætla í
Galtalæk, þannig að endilega svara því í
skoðanir!
-Ása..<3;*

»
13.07.2006 17:29:13 / Dagny*!
»
07.07.2006 16:36:36 / asa
»
06.07.2006 17:49:29 / klessurnar-
»
02.07.2006 22:00:58 / Eva..!;*
»
01.07.2006 22:45:03 / karen
»
30.06.2006 18:45:07 / klessurnar-
»
28.06.2006 17:45:07 / Dagny*!
»
26.06.2006 14:18:35 / asa

Nei komiði sæl!
Jæja 17.júni var ágætur sko, hitti Möggu og Rut
og fullt af stelpum niðrí bæ um fjögurleytið og við vorum bara að
labba um og spjalla við fólk, fórum á Hressó og fengum okkur að
borða en fórum svo að horfa á einhverja tónleika. Svo fórum við
Magga heim, skiptum um föt og Rut skutlaði okkur niðrí bæ og þá var
skemmtilegast, hittum Arnar, Krissu, Steina og e-ð fleira
fólk Þvílíkt stuð en þurftum samt að koma heim svo snemma að
það var soldill bömmer en annars var geðveikt! Daginn eftir fóru
ég, Magga, Rut og Hildur í Smáralandina og keyptum í matinn og e-ð
en fórum svo heim fljótlega til að ná að horfa á America´s
Next Top Model og horfðum á það og svo minnir mig að ég hafi bara
farið heim. Ég var held ég bara heima á sunnudeginum að hangsa það
getur ekki hafa verið e-ð merkilegt. Svo byrjaði ég í
unglingavinnunni á mánudaginn sem var ekkert æðislegt útaf þessu
ömurlega veðri en svo var mikið skemmtilegra eftir svona 2-3 daga
þegar sólin fór að skína! Á fimmtudaginn var Ína í bænum og
ég fór heim með henni og við komum okkur fyrir með þvílíkar byrgðir
af nammi og gosi og horfðum á 8 Mile, en samt ekki alla því við
þurftum að fara út að reka einhverja hesta sem gekk ekkert æðislega
en tókst nú samt á endanum. Svo fórum við inn að borða og
horfðum á Desperate Housewifes, svo var einhver dýna úr
tjaldvagninum þeirra sem var á gólfinu og við lögðumst á hana og
töluðum bara saman og steinsofnuðum en svo vaknaði ég við að síminn
var að hringja og þá voru mamma og pabbi komin að sækja mig. Á
föstudaginn voru mamma og pabbi að fara í e-ð partý og ætluðu að
vera yfir nóttina þannig að Keli og Stebbi komu og við pöntuðum
okkur pítsu og Tinna kom svo. Þeir fóru svo út, við Tinna fórum og
keyptum okkur ís og Ösp kom. Ég fór svo bara fljótlega að sofa. Á
laugardaginn fór ég til Oddnýjar og við fórum og leigðum okkur Walk
the Line og Enough og töluðum e-ð aðeins við Dabba og Þorstein
en fórum svo heim og horfðum á Walk the Line sem er geðveikt góð en
ég þurfti svo að fara heim þannig að við horfðum ekkert á Enough
saman. Í gær kom Gunnþóra frænka með Leó og svo Gurrý og
Heimir og það var e-ð smá kaffi, svo fóru þau og ég, mamma og Tinna
fórum að legsteininum hennar ömmu og létum kerti og fórum svo til
afa. Vorum þar í einhvern tíma og Gurrý og Heimir komu! Svo
var ég VEIK í dag! Skil það ekki eins og veðrið er búið að vera
gott! Jæja ætla að reyna að kíkja á ykkur um næstu
helgi..
-Ása;*<3
»
23.06.2006 13:19:31 / Dagny*!
»
16.06.2006 21:25:30 / asa
Já góðan
dag!

Já þá er maður bara orðin borgarbarn! Soldið skrítið en þetta
venst nú alveg. Vá það er nú eiginlega bara orðið óþægilega langt
síðan ég bloggaði seinast sko, næstum mánuður síðan. En já á
mánudaginn í síðustu viku kom flutningabíll í Odda og við þurftum
að flytja allt draslið þangað og komum svo í bæinn og komum bara
fyrir svona helstu hlutunum og pöntuðum svo pítsu, svo held ég bara
að ég hafi farið að sofa. Ég man ekki neitt hvað ég gerði á
miðvikudaginn en á Fimmtudaginn fór ég með Tinnu í
mæðraskoðun Og svo þurftum við e-ð aðeins að koma við á
spítalanum að mæla e-ð. Á föstudaginn fór ég í klippingu
Ógeðslega flott.. Á Laugardeginum fórum við útað borða á
Fjöruborðinu á Stokkseyri útaf því að afi átti afmæli, öll
ættin saman.. Svo komum við heim og ég fór e-ð aðeins út að hitta
Torfa, Sindra, Ásgeir og Róbert sem voru bara að rúnta e-ð..
En fór svo bara inn að sofa. Á sunnudaginn var innsetning hjá pabba
í nýju kirkjunni þannig að við fórum þangað og svo var kaffi á
eftir. Á Mánudaginn var sjónvarpið, netið og síminn allt
tengt..LOKSINS! Og svo fór ég með mömmu í nýja skólann sem ég er að
fara í og skoðaði hann e-ð aðeins..Man ekkert hvað gerðist á
þriðjudaginn en á miðvikudaginn kom Snæbjörg til mín og við fórum
niður í bæ á Hamborgarabúlluna og svo bara að rölta á
laugarveginum, keypti mér hálsmen, eyrnalokka og eina ógeðslega
flotta peysu í Spúútnik. Svo um kveldið þurftum við að fara uppá
Skaga að hjálpa frænda mínum að flytja, vorum dauðþreyttar þegar
við komum heim þannig að við fórum bara beint að sofa og horfðum
svo á Father of the Bride þegar við vöknuðum, skruppum svo á Subway
til að fá okkur að borða og skutluðum svo Snæbjörgu í rútuna. Við
Tinna vorum með hundinn og fórum með hann á Ægissíðu og viðruðum
hann og hittum Snorra. Svo hringdi Keli og sagði að hann og Ösp
hefðu bæði unnið miða fyrir tvo á Take the Lead sem voru þá semsagt
4 miðar en hann gat ekki farið þannig að við ákvaðum bara að fara
og taka Rut og Möggu með okkur þannig að við brunuðum bara uppí
Efstaleiti og fengum miðana. Tinna skutlaði mér svo bara heim því
hún var að fara í jóga og e-ð þannig að ég var bara ein heima að
dóla mér e-ð. Svo fórum við á myndina um kveldið sem var æðisleg ég
ætla svo pottþétt að fara að æfa dans hérna í bænum..Uuu já í dag
hef ég nú bara verið liggjandi í leti horfði ein á Blóðbönd í
morgun sem er vægast sagt ömurleg! Ætlaði til Möggu en það var e-ð
svo mikið að gera hjá henni þannig að við ákvaðum bara að
ég kæmi til hennar á morgun, 17.Júní Djamm! En
allavega.. Adios bitches!
-Ása Borgarbarn!

»
13.06.2006 14:53:27 / klessurnar-
Til hamingju með afmælið sætasta..!! ;*


Hinn merka dag 13.júní á því herrans ári 1991 kom
ung stúlka í heiminn sem hlaut svo nafnið Eva Ýr...

Frá því við kinntumst henni allar á sitthvorum
tímanum Dagný fyrst, Ása svo og svo loksins Karen þá hefur hún
verið allveg verið hreint frábær vinkona og hefðum við alls ekki
viljað sleppa því að kinnast henni ;*;**

En Eva flutti hingað á Hellu á milli 4 og 5 ára
aldurs og bjó hjá ömmu sinni (fyrir aftan Dagnýju) ,flutti svo í
annað hús hinu megin við götu ömmu hennar en flutti svo þaðan á
Selfoss...!! svo í miðjum 2.bekk fréttum við frá frændum Evu að hún
væri að koma í skólann og biðu við stelpurnar þá spenntar eftir
henni.. ! ;* Svo loksins kom hún í bekkin og urðum við þá mjög
góðar vinkonur og hafa Dagný og Eva eiginlega verið bestu vinkonur
síðan...
 
En svo liðu og liðu árin, Eva stækkaði eignaðist
nokkra kærasta, og eru þeir enn í dag á fullu á eftir henni þar sem
hún er nýkomin á laust... !
Eva æfir körfubolta af kappi og æfði fótbolta 11
og 12 ára gömul... Eva er afbragðs góður dansari og svo syngur
hún þrusuvel og er hún í kór ;*

Viljum við óska þér alls hins besta á
afmælisdaginn elskan okkar..;* gangi þér allt í haginn í lífinu og
til hamingju með 15 ára afmælið... 
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Eva
Ýr
Hún á afmæli í dag
þú kannst svo rest...
  
En höldum að þetta sé komið fínt... kemur svona
smá myndaspyrpa í gegnum árin...
 " isvideo="false" hrfilesize="472" lrp=
"347344487%7Fhlnh%3C%3E%3Doqfcojruw%3Dlodihtrqw%3Dgo433AScwj%40%3Dot%3E236%3B%3D84%3C%3D826%3DXROQDF%3E232474448385%3Aot1lsiBUwqucjgFgonQcpg%40fp342"
incart="false" imgoid="1319486753" imgid="1319486753"> 
 !'06 108" isvideo="false" hrfilesize=
"770" lrp=
"346749994%7Fhlnh%3C%3E%3Doqfcojruw%3Dlodihtrqw%3Dgo42%3AAScwj%40%3Dot%3E236%3B%3D84%3C%3D826%3DXROQDF%3E232453934%3C936ot1lsiBUwqucjgFgonQcpg%40fp339"
incart="false" imgoid="1163897355" imgid=
"1163897355">  !'06 126" isvideo="false" hrfilesize=
"806" lrp=
"34674%3A899%7Fhlnh%3C%3E%3Doqfcojruw%3Dlodihtrqw%3Dgo42%3AAScwj%40%3Dot%3E236%3B%3D84%3C%3D826%3DXROQDF%3E2324544%3C9826%3Bot1lsiBUwqucjgFgonQcpg%40fp339"
incart="false" imgoid="1169680401" imgid="1169680401">
Enn og aftur til hamingju með afmælið
ást..;*;**
Kv.Klessurnar-/
»
11.06.2006 17:29:44 / Dagny*!
»
02.06.2006 15:42:29 / Dagny*!
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|